Addi

09.08.2007 23:01:16 / norilee

Maðurinn var Drekinn

jæja þá er maður kominn heim aftur eftir Akureyrar ferðina. Það var nú bara ágætis stuð í bænum miðað við að bæjarstjórinn bannaði 18-23 ára að koma. meira helv bullið alveg ótrúlegt að gera þetta.

var að lesa DV um daginn og búllan á Ak keypti 4000 borgara fyrir helgina og seldi bara 1000 það bara segir að það voru fáir unglingar að fá sér hambó eftir djammið. Ef þetta verður svona næstu versló þá mæti ég ekkí til ak það er alveg klárt. maður fer til eyja eða bara í útileigu með strákunum. 

Maður er bara að æfa á fullu og vorum t,d að spila á móti HK og unnum þá með 12 mörkum og það vanntaði hjá okkur Erni,Pálmar og óla gísla en þeir voru með alla hjá sér nema sergey patreitis. hehe öruglega rétta skrifað.

þetta er svona að koma hjá okkur og þetta var bara fyrsti æfngaleikurinn okkar þannig að við stöndum alveg ágætlega miðað við það... sum lið hafa spilað 3-4 leiki en ég var mjög ánægður með spilamennskuna.

Það er menningarnótt um næstu helgi og auðvitað ætla ég að beila á henni því ég hef ekki mikla trú á þessari nótt, jújú það verður pakkað í bænum en það er of pakkað til að komast á staði og bara vera í bænum. Þetta er ekki fyrir mig og Bubba það er alveg klárt alltof mikið af fólki hehe.

Veit að sindri og Bobby ætla að koma suður til að fara á menningarnótt og ég sagði við sindra að ég myndi öruglega ekki fara þá sagði hann, takk vinur að vera svona góður vinur.... Ég man ekki betur að sindri drakk ekki með okkur strákunum um versló vááá hvað þú ert góður vinur sindri:D jú hann drakk með okkur heima hjá bubba á laugard og fór svo heim eftir það   (GÓÐUR SINDRI)

En ég nenni ekki að ræða þetta við manninn hann er gjörsamlega heilalaus að það er eitthvað met hehe.

Nenni þessu ekki lengur jú eitt hérna, Anton Rún var drekinn úr vinnuni fyrir stuttu og við skulum klappa fyrir honum:D mjög góður árangur hjá kallinum.

 

Kv Arnór


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 21:30:29 / norilee

Akuryeri um Versló

Það eru Hommar í Verzló

 

 

Jæja þá er Verzlunarmanna helgi að fara detta inn og maður er byrjaður að hlakka mikið til að komast til Ak... Ég fæ frí í vinnuni á föstd og kem þá á Fimtd kvöldið með mínum manni Gústa Skínku eins og hann er gjarnan kallaður.

En ég hef ekki heyrt aðra eins vitleisu í langan tíma... Okkar nýji bæjarstjóri á AK Sagði í fréttum í gær að unglingar sem eru 18 til 23 meiga ekki tjalda á tjaldstæðum á AK er ekki allt í lægi með fólk?. Samt stendur í þessum glæsilega bækling (Ein með öllu) að það sé 18 ára aldurs takmark á tjaldstæðum, Á þetta bara að vera fjölskylduhátíð og allt daut í bænum? ég var nú bara að lesa bækling fyrir stuttu það stóð í honum að þeir ætluðu að kynna ak sem fallaegasta bæ á íslandi, og meiga unglinar 18 - 23 ekki sjá hvað Akureyri sé flottur og frábær? þetta er algjör fáfróði. En já ég er ekki frá því að hún sé bilaðari en kristján fyrverandi bæjarstjóri og hann var mjög svo bilaður.

En já talandi um Eina með öllu, hvaða BJÁNI stakk upp á því að kalla hátíðina það? og hverjir voru það sem samþyktu að kalla þetta ein með öllu? Er bara ekki frá því að þeir sem samþyktu þetta séu jafnvel meiri bjánar en sá se stakk upp á þessari ömurlegu nafni á hátíð. og láta blekkjast.. Halló Akureyri er málið og ég hefði alveg verið til í að vera 20 ára á þeim tíma 20 þúsund manns komu og höfðu gama, en sumir mis gaman haha... En ég ætla að hætta þessu. SJÉ YKKUR Á AK UM HELGINA;)

 

kV Addi


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 11:56:35 / norilee

jajajajajajaj

Strandhandb 

 

jæja þa kemur smá blogg frá mér... það er nú ekki mikið sem ég er buinn að vera gera,Vinna og svo æfingu en því miður þarf maður alltaf að meiðast hehe ég var í útihlaupi og steig ofaná stein og auðvitað þurfti slæmi öklinn að lenda í því. en maður er að jafna sig og borða bólgueyðandi eins og smartis heheh. En ég var að klára að spila á strandhandb mótinu sem markmaður og maður er ekki buinn að gleyma neinu sem fótb markmaður.... Skutlar sér og að verja helling:) við unnum okkar leiki í riðlinum og keppum aftur kl 3 í 8 liða úrslitum... þetta er algjör snilld þessi strandbolti. en ég hef ekki mikið að segja. bleeeee

 

Kv Addi 


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 01:24:23 / norilee

Blogg eftir langa pásu

Ég er ekki frá því að Aron sé geðveikur í hausnum 

 

Hmmmmmmmmmmm þá er maður kominn aftur til RVK og það er bara svona helv gott... Byrjaður að vinna á fullu og allt ad gerast. Þetta er búið að vera mikið chill hérna í Valsheimilinu þessa daga sem eg er búinn að vera vinna en í dag var dagur SATANS og ég er ekki að grínast. Oki ég byrja ekki að vinna fyrr en kl 1 og er til 9 en í dag þegar ég kom í vinnuna þá var sagt mér að merkja völlinn ég sagði bara jájá ég hef gert þetta svona 800 sinnum og ég hélt að ég ætti að merkja Gamla völlinn.... Ennnnn nei ég átti að mæla út jafnstóran völl og Old Trafford og strengja og mála línurnar Ekki nóg með það þá vorum við 2 að þessu, Ég og Þjálfari 3 flokks sem stakk upp á þessari hugmynd, ekki slæm hugmynd því þeir voru vanir að æfa á svona stórum velli og vildu láta hitt liðið þreytast fljótt. En já við byrjuðum að mæla út kassann og það gékk brösulega því málbandið var ónýtt en við náðum að redda þessu á hálftíma þá var kl orðin 2. Við kláruðum svo að mæla og fórum svo að strengja það gékk ágætlega og kláruðum kassann og mála á svona 2 tímum, þá var kl 4 og 2 tímar í leik. Byrjuðum svo að taka miðjuna, hann þurfti svo að fara til að tala við strákana í liðinu því jú hann er þjálfarinn og þarf að halda ræðu eins og allir þjálfarar. Þannig að teigarnir voru eftir og ég náði að fá einn strák með mér í þetta og kláruðum þetta 10 mín fyrir leikinn og þetta rétt slapp.... og ég borðaði ekkert á þessum tíma og var að hlaupa á milli í stress kasti útum allt en þetta bjargaðist... Eftir þetta allt stúss var líka chillað til 9 og það var ekkert smá ljúft heheh besta chill sem ég hef tekið í langan tíma, fyrir utan allar lagningarnar sem ég og Heiddi tókum þegar ég var að vinna á AK fótb Vellinum og þær voru ekki súrar þær voru snilld.. Nú verður Pabbi brjálaður hahah

 

oki ég held að Aron sé GEÐVEIKUR Í HAUSNUM... hann segir þetta í viðtali við fotbolti.net = Ég hafði miklu meira gaman af fótbolta, mér finnst Handbolti vera og einföld íþrótt þar sem þú ert alltaf að gera það sama nánast. Þúr verst, ferð fram, stimplar og reynir að skora. Í fótboltanum getur þú gert miklu meira sem þú getur ekki gert í Handboltanum.

Já hann hafði meira gaman að vera í fótboltanum það er rétt hjá honum. En að segja að Handbolti sé of einföld íþrótt er bara rugl... Ég hitti Bandaríkjamann fyrir stuttu fyrir norðan og hann byrjaði að tala við mig þegar ég var að lyfta a bjargi og spurði mig hvort ég væri með Þór og í fótbolta, Ég sagði nei ég hefði verðið í þór einusinni en er núna í Val í Handbolta, Hann sagði ég horfði á ÍSl-SERB og þetta var alltof flókið og maður þarf að læra á þessa íþrótt öruglega i langan tíma.

Svo eitt hvert lið,allavega mfl lið eru með 30 kerfi og maður þarf að kunna þau öll en í Fótbolta þá eru 2 kerfi í hornum og 2 til að verjast hornum og 2 í aukaspyrnum og líka 2 til að verjast. Þannig að þetta eru 8 kerfi sem þessi blessuðu fótbolta menn þurfa að læra.... svo þegar það eru ekki aukaspyrnur eða horn þá er dúndrað boltanum fram og svo sem er fljótastur í liðinu hann á að elta boltan og reyna að skora, Allavega hérna á íslandi og þetta var svona í Englandi einusinni.

Þannig að það sem ég er að meina að það eru meira af taktísku drasli í Handb en í Fótb og auðvitað er þetta allt önnur íþrótt t.d fótboltamenn þurfa að vera í langhlaupaformi en Handbmenn í sprettformi.... Aron getur öruglega hlaupið 12 Km ánþess að svitna en Ég get hlaupið 6 Km og er alveg búinn á þvi en ef ég myndi spretta þá væri Aron búinn á því eftir 10 spretti og Ég tilbúinn í miklu meira þannig að þetta er allt öðruvísi.. En Handbolti er taktískari en fótbolti þannig er það bara. Og við í Val notum kerfi í hverri sókn, Það eru sirka 60 sóknir og við notum okkar kerfi og sum kerfi oftar. 

 

Jæja nóg komið að þessu hehe

KV Addi


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 14:33:26 / norilee

AK aftur

 

Gott

 

JúJú þá er maður kominn aftur til AK eftir vikurferð á Tyrklandi. Þetta var bara ágætisferð nema það að það var alltof heitt þarna mest fór hitinn í 46 gráður og fór ekki neðar en 35 og það var á kvöldin.... Pældu í því Þetta er ekki fyrir menn að vera í svona miklum hita. ég var líka bara í loftkælingunni á herberginu a horfa á sjónvarpið eða lesa bók og hafði það bara helv gott meðan að mamma var soðin í 46 stiga hita haha. En þetta er síðasta vikan mín á Ak og ég fer til RVK á föstudag og byrja að vinna á mánudag í Valsheimilinu sem er algjör snilld.

En talandi um Tyrklandsferðina þá náði ég að kaupa mér 2 buxur 4 boli það er nú ekki mikið miðað við minn smekk því ég fylli alltaf töskuna mína þegar ég er úti. En gerði það ekki núna því allt þarna er eftirlýkingar... en ég fann 2 búðir sem voru ekki svoleiðis og keypti mér fötin þar. En annars var þetta snilld og hafði svo sem gaman af þessu nema basra hitanum sem var dauði:)..

En nenni þessu ekki lengur ble

 

KV Addi

 

» 6 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 19:00:53 / norilee

jújú

Akureyri 

 

Jamm og Jæja þá er maður komin til AK og það er bara helvíti gott að vera hérna. Það eru allir svo chillaðir á því og ekkert sress eins og er í RVK. En ég segi bara allt gott er bara að æfa 2 á dag og ekkert að vinna.En það er vegna þess að ég verð svo stutt hérna fer aftur 1 júli og þá byrja ég að vinna fyrir sunnan. Svo er maður að fara til Tyrklands með Fjölsk í viku og það vrður geggjað öruglega því ég hef ekki komið þangað áður.

Svo er ég,Bubbi,Andri snær og Sindri að fara vestur næstu helgi í bústað og svo kíkka ég öruglega á Ömmu og fólkið mitt þar. Ég hef ekki komið þangað síðan ég kláraði 7 bekk og það eru helv mörg ár síðan ég kláraði hann.

En ég skrifa eitthvað merkilegt næst;)

 

Kv Arnór


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 11:47:43 / norilee

jamjamm

Holland 

 

Jæja þá er maður mættur til íslands aftur eftir mjög góða ferð til Hollands. Ég og Aron gerðum mjög mikið saman fórum nokkrum sinnum í bæinn að kaupa föt og borða og drekka bjór, allavega ég Aron var bara í Ís te. Svo a sunnudeginum þá fórum við á leik með AZ, sem vann Twente 2-0 og eru því komnir áfram og keppa svo úrslitaleik við Ajax um meistaradeilda sæti og vonandi vinna þeir það.

En já Ég fór á þennann umtalaða Kína stað sem allir eru að tala um og mér fannst hann bara alltilæi,Jújú hann var góður en ekki eins góður og allir eru að segja. En þetta er samt staður sem ég færi á því maður velur sér bara mat og hann eldar matinn á 1 mín og svo borðar maður. Þannig að maður borðar,borgar og svo fer maður, Maður nennir ekki að hanga á matsölustað í 2 tima það er hundleiðinlegt.

En já þetta var bara helv gaman og það var líka gaman að horfa á Aron spila með varaliðinu en þeir töpuðu sem var mjög slæmt. En það var gaman að sjá að Aron var bestur í þessum leik hjá AZ því hinir nenntu þessu ekki og höfðu ekkert gaman af þessu. En Aron var að reyna sitt besta og fékk 2 mjög góð færi eftir hornspirnu en náði ekki að nýta en það munaði litlu því það var í bæði skiptinn bjargað á linu eftir Hornin.

 

Nenni þessu ekki lengur er að fara gera eitthvað af viti.

 

Kv Arnór


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 12:38:49 / norilee

Holland

 

Alveg að verða búið

 

jæja nú er bara 1 próf eftir og það er HÚB sem er Viðgerðir á húsum mjög skemtilegt fag þar á ferð eða þannig:). Svo er kallinn að fara til Hollands á miðvikudag til að hitta Aron og verð þar í 6 daga eða svo og beinnt á HSÍ hófið sem verður 16 mai og ekki verður leiðinlegt að koma með Íslandsbikarinn og djamma af sér rassgatið.

En já við unnum í 2 flokk íslandsmótið og urðum þá bikar meistarar,RK meistarar og svo íslandsmeistarar sem er ekki slæmt fyrir mig því þetta er fyrsta árið mitt hérna og vinna þetta allt og svo mfl íslandsbikarinn og RVK meistarar þar líka. Þannig að ég vann 5 Gull og svo bætist vonandi 1 í viðbót sem Deildarmeistarar í 2 flokk þannig að þetta gæti farið í 6 gull á 1 ári hjá mér (Ekki slæmt).

 

Nenni þessu ekki lengur ætlaði bara að láta vita af mér og segja fólki að ég væri að fara út á miðvdag og er alveg að verða búinn í prófum. Gaman Gaman

Kv Arnór


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 12:06:46 / norilee

leikur

jæja það er leikur hjá mér á eftir kl 2 um hvort við verðum Íslandsmeistarar í 2 flokk. Við unnum Hauka í gær í frekar erfiðum leik en unnum samt með 4, Þannig að við erum að fara keppa á móti UMFA sem vann Akureyri í frekar daufum leik sem Ak átti að vinna en þeir voru að spila frekar lélega og töpuðu með 6 mörkum.  Ef við vinnum á eftir þá  eigum við bara 1 titil eftir til að vinna allt sem hægt er að vinna í 2 flokki, RVK open meistarar,SS bikarmeistarar,Íslandsmeistarar og svo deildarmeistarar sem verður öruglega næstu helgi á móti AK því þeir unnu sinn riðil og við unnum okkar.

 

En já vonandi vinnum við þetta og þá verður þetta í 3 skiptið í röð sem valur vinnur íslandsmeistaratitilinn í 2 flokki.

 

En enni þessu ekki lengur.

 

kv Arnór 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 23:49:05 / norilee

Nýjar myndir

Komnar nokkrar myndir frá því á sunnudeginum þegar við urðum Íslandsmeistarar og svo líka af nýja húsinu sem verður tilbúið í júni:D.

 

Kv Arnór


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 23:11:13 / norilee

Valur Íslandsmeistari 2007

Valur Íslandsmeistari 2007:D
Jæja þá er Íslandsmótið búið hjá okkur og við náðum að vinna þetta eins og ég lofaði:D þetta var líka ekki leiðinlegt. Eftir leikinn þá voru 5 kampavínsflöskur opnaðar og sprautað útum allt og fagnað aðeins meir eftir það beið 2 hæða opin rúta og keyrt frá Hafnafirði í hlíðarnar sem er vals hverfið og tekið nokkra hringi og svo beinnt í höllina og borðað geggjaðan mat og drukkið smá með því:D. En maður þurfti nú að fara heim í smá fín föt og beinnt í Seglin og djammað áfram í höllinni þetta var algjört stuð.
Ég sagði hér í kommentum að ég yrði sprautaður fyrir leikinn en solla vildi það ekki og er ég mjög feginn því eftir leikinn gat eg ekki labbað, ef ég hefði verið sprautaður þá hefði kannski eitthvað gerst og ég væri þá ónýtur daginn eftir og kannski viku eða vikur og misst þá af deildarbikarnum og kannski líka íslandsmótinu í 2 flokki og ekki væri ég til að missa af því.
Þannig að ég er mjög svo þakklátur sollu að hafa slept að sprauta.
En svo er leikur á morgun á móti Stjörnuni og vonandi verð ég klár fyrir þann leik er samt ekki alveg viss hvort ég geti verið með en það kemur í ljós á morgun.
Langar samt að koma með eina stöku sem Markus samti fyrir leikinn á sunnudaginn
Loks er komið að því
biðin enda tekur
meistarar enn á ný
Hlíðarendi sigurinn skekur


(Markús Máni 2007)

Nenni ekki þessu lengur kv Addi Íslandsmeistari.

» 9 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 11:17:50 / norilee

shitt

Getur verið

 

ohhhhhhhh getur verið að ég hafi meiðst í gær ég er alveg ótrúlegur í þessum málum. Áður en ég kom til Vals þá hafði ég aldrei meiðst neitt illa mestalægi á putta eða smá í ökla. En eftir að ég kom hingað þá hef ég meiðst mjög illa einusinni og var frá í 2 og hálfan mánuð á hné sem er ekki besti staður til að meiðast. Svo fyrir ca 2 mánuðum þá kom smá uppá í Fram leik og þá var það V öklinn og það innanvert. Já menn fara að hugsa bíddu hvernig í ansk getur hann verið meiddur innanverðan ökla? jú Ég var að snúa mér við eftir að hafa skorað úr hraðarupphlaupi og það gerðist eitthvað og þá kom það í ljós að það var liðpoki í öklanum sem fór í fokk. En ég er svona að jafna mig eftir það núna og er með spelku og hún virkar mjög vel. þá er aþð nýasta og það gerðist í gær, Ég var í upphitun að skjóta úr stöðu og steig á löppina á orra og nú var það H öklinn og ekki var þetta gott og núna utanvert. Ég fór beinnt í kælingu í 40 mín og svo kom solla sjúkraþjálfari sem hefur bjargað mér mikið eftir að ég kom hingað í val og setti mikinn þrýsting á og sagði mér að vera með það í 2-3 daga. Núna er ég bara að taka inn voltarin töflur og reyna að halda mér gangandi þangað til að síðasti leikurinn verður sem er á sunnudag og btw er sýndur í sjónvarpinu kl 16:10 og líka HK leikurinn sem er á Akureyri á móti Akureyri. Og ég vona að mínir menn þar vinni þá og við vinnum hauka þá vinnum við með 2 stigum sem lítur betur út en að vinna með inbirðismun ef HK vinnur líka.

En nenni ekki að skrifa meira og vonandi finnst ykkur gaman að lesa sjúkrasögu mína eftir að ég kom hingað suður:D

En ætla að láta ykkur vita að ég ætla að spila þennan leik þótt ég sé sjárþjáður því ég ætla að vinna bikarinn eftir að hafa spilað leikinn en ekki í stúkunni:D

 

 

Valur Íslandmeistari 2007

(vonandi á sunnudaginn) 

 

 

 

Kv Arnór


» 23 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 13:23:07 / norilee

jájá

1 leikur eftir 

 

Sösss sösss sösss nú er bara 1 leikur eftir af íslandsmótinu og ef við vinnum hann þá verðum við meistarar, ekki slæmt það.

það var leikur á fimtudaginn síðasta á móti Fram og unnum hann með 10 mörkum og svo var leikur í gær á móti ÍR og við tókum hann bara létt eins og á móti fram og unnum hann með 11 mörkum.

En það er svosem allt gott að frétta hérna allir í góðum gír og allt að gerast. prófin byrja eftir tæpar 2 vikur og fer í 5 próf sem verða ekki auðveld eða allavega ekki 2 af þeim. hin eru semí létt.

Aron langaði að segja eitt hverna við þig. DRULLAÐU ÞÉR TIL AÐ VERA INNÁ MSN svo ég geti nú talað eitthvað við þig.

 

En nenni ekki að skrifa meira núna kem kanski með eitthvað fyrir leikinn á sunnudaginn og svo kannski ef við vinnum þann dag og verðum íslandsmeistarar.

 

Kv Addi 


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 10:14:19 / norilee

ffffff

jæja nú er ég kominn til íslands eftir mjog skemmtilega ferð með landsliðinu fæddir 86 eða yngri. við spiluðum 3 leiki á 3 dögum fyrsta á móti Austurríki,spánverjum og svo að lokum Sviss. Unnum austuríki létt eða með 10 mörkum svo kom leikur á móti spáni og töpuðum honum með 3 mörkum eftir að leikurinn hafi verið jafn á öllum tölum þangað til að 6 min voru eftir þá komust þeir yfir og unnum með 3 eða 4 mörkum. Svo var það síðasti leikurinn á mótinu og var hann á sunnudegi og á móti Sviss og við unnum þá með 6 mörkum frekar létt.

 

En langaði bara að láta vita af mér því ég er búinn að vera úti síðan á miðvikudag og er ekkiert búinn að komast í tölvu þar sem ég var.

Mjög skemmtileg ferð og stóðum okkur bara helv vel þótt maður sé svektur að komast ekki áfram á síðasta mótið en svona er þetta bara :S.

 

Nenni þessu ekki lengur bleelelele.

Kv Arnór


» 12 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 13:43:50 / norilee

Blogg

Smá blogg

 

Jæja nú ætla ég að koma með smá blogg. Ég var að horfa á leik Englands og Andorra fyrir 2 eða 3 dögum síðan og leikurinn var nú ekkert spennandi fyrir fólkið sem var að horfa hér á íslandi en nátturulega spennandi fyrir ensku þjóðina því þeir eru búnir að skíta svo á sig. En já man nú ekki hver var að lýsa leiknum en held að það hafi verið Arnar Bjö og váá hvað hann var leiðinlegur, jújú Andorra menn voru að spila ömurlegan fótbolta og voru með 9 í vörn og einn í marki og einn Frammi. Þeir voru líka að láta sig detta stundum og rúlla sér eins og þeir fengu borgað fyrir það, eins og sumir vita er Andorra ekki nema 70,000 og allir sem búa þar gætu komist á Old Trafford og að sjálfögðu þá litla liðið í leiknum. En oki stundum voru þeir að leika eins og ég sagði þarna áðan en stundum var Gerard og fleiri sem voru að brjóta harkalega af sér og allavega 3 skipti voru þeir tæklaðir í drasl og Arnar Bjö sagði (ERTU EKKI AÐ GRÍNAST ÞEIR DETTA EINS OG FLUGUR AF ÞEIM) og þeir voru tæklaðir í rusl!!!. Og svo þegar England var að leika eitthvað þá bara (HEY AFHVERJU DÆMIR EKKI DÓMARINN Á ÞETTA??? ÞETTA VAR PJÚRA BROT) Svo eitt skiptið var Gerard kominn inn í vítateig og markmaðurinn kom á móti og hann lét sig falla þá segir Arnar ( HEHEHE GAMAN AÐ SJÁ ÞETTA HJÁ GERARD HANN ÆTLAÐI AÐ REYNA FÁ VÍTI OG HLÓ)  Ef Andorra menn hefðu reynt þetta þá hefði Arnar brjálast og kallað þá aumingja en þetta vara KÓNGURINN GERARD  þá má hann gera þetta. Þetta er ekta leýsendur hérna á íslandi.

 

Svo langar mér að tala aðeins um íslenska landsliðið, hvenær er maður ánægður með jafntefli??????????????? ALDREI allavega ekki ég. Veit ekki hvort ég sé svo heimskur að segja að ég sé ekki ánægður með jafntefli en þeir sem voru að lýsa leiknum voru að vonast til þess að leikurinn myndi nú fara jafntefli, Jújú þetta var Spánn en að fara í leik og ætla að gera jafntefli er ekki hugsunarháttur sem maður á að hugsa þótt liðið sem maður spilar við sé miklu sterkar og líkklegra að vinna, maður á alltaf að fara í leik til að vinna allavega var mér kennt það. (Veit ekki með íslenska landsliðið í fótbolta) Þannig að þegar ég horfi á þá spila og þeir tapa þá verð ég ánægður og ef þeir vinna þá verð ég ánægður líka þannig að maður er alltaf ánægður með þá þótt þeir tapi eða vinna heheh SKRÍTIÐ EKKI SATT?? en svona er þetta því þeir spila svo leiðinlegan bolta að maður getur ekki haldið með þeim:S.

Nenni ekki að tala lengur um fótbolta, En langaði að minna fólk á að það er leikur í sjónvarpinu hjá mæer á eftir HK-Valur kl 16:15 á Ruv ef fólk vill horfa á alvöru íþrótt. Ekki íþrótt sem maður vill gera jafntefli;)

 

Kv Arnór 


» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
RSS tengill